top of page

Hilmir Kristjánsson

Löggiltur sjúkraþjálfari

Hilmir

Hilmir er fæddur og uppalinn í Grindavík og hefur alla tíð verið virkur í íþróttum, sérstaklega körfubolta. Hilmir útskrifaðist með BS-gráðu í sjúkraþjálfunarfræðum árið 2020 og meistaragráðu í sjúkraþjálfun árið 2022 frá Háskóla Íslands. Frá árinu 2022 hefur hann starfað hjá Sjúkraþjálfun Suðurnesja þar sem hann vann með fjölbreyttum hópi einstaklinga á mismunandi stigum endurhæfingar.


Hilmir hefur jafnframt starfað sem sjúkraþjálfari hjá meistaraflokkum Grindavíkur og Fylkis í fótbolta, bæði í karla- og kvennaflokkum, ásamt því að hafa tekið þátt í verkefnum með yngri landsliðum Íslands í körfubolta. Þessi reynsla hefur styrkt færni hans í að vinna náið með íþróttafólki og styðja það í bataferli, meiðslavörn og frammistöðubættri þjálfun.


Helstu áhugasvið Hilmis eru endurhæfing eftir aðgerðir, sjúkraþjálfun íþróttafólks og almenn sjúkraþjálfun. Markmið hans er að veita faglega, markvissa og einstaklingsmiðaða þjónustu sem hjálpar fólki að ná fullri virkni og lifa sterkara og heilbrigðara lífi.

bottom of page