Jóhann Árni Ólafsson
Markþjálfun og íþróttaráðgjöf

Jóhann býður upp á bæði markþjálfun og íþróttaráðgjöf sem byggir á traustum fræðilegum grunni. Jói, eins og hann er kallaður, hefur yfir tveggja áratuga reynslu af vinnu með fólki. Hann er með meistaragráðu í vinnusálfræði, BSc í íþróttafræðum og er viðurkenndur markþjálfi. Hann hefur aðstoðað fólk með viðtalstækni síðan 2022. Hann hefur spilað körfubolta í yfir 30 ár og þjálfað í yfir 20 ár. Sú reynsla hefur nýst vel við að aðstoða og skilja leikmenn, þjálfara og aðstandendur í íþróttaheiminum.
Jói hefur mikla reynslu af og ánægju af því að vinna með ungu fólki og leggur ríka áherslu á að styðja það við að byggja upp sjálfstraust og aga sem nýtist því til framtíðar.
Hvað er boðið upp á:
• Markþjálfun er öflug leið til að virkja hæfileika þína til að ná þeim árangri sem þú stefnir að. Hvort sem markmiðið er persónulegur vöxtur, betri frammistaða eða aukin lífsgæði, þá er markþjálfinn traustur liðsmaður á þinni vegferð.
• Íþróttaráðgjöf hentar íþróttafólki og hópum sem vilja hámarka getu sína með því að samþætta andlegan styrk og markvissa nálgun á verkefnin.
Mikil áhersla er lögð á að skapa öruggt umhverfi þar sem unnið er saman að því að finna þær leiðir sem virka fyrir þig.
Hvað er markþjálfun?
Markþjálfun er öflug leið til að virkja hæfileika þína og getu til að ná þeim árangri sem þú stefnir að. Hvort sem markmiðið er persónulegur vöxtur, betri frammistaða eða aukin lífsgæði, þá er markþjálfinn traustur liðsmaður á þinni vegferð. Með virkri hlustun og hvetjandi spurningum hjálpar markþjálfinn þér að sjá kjarna málsins og öðlast nýja sýn. Í því ferli sem markþjálfun er finnur þú þínar eigin lausnir og stígur skrefin í átt að varanlegum breytingum.
Markþjálfun er aðferð sem hjálpar fólki að hámarka sína meðfæddu hæfileika og brjóta niður andlegar hindranir.
Hvernig virkar markþjálfun?
Í stað þess að segja þér hvað þú átt að gera, beitir markþjálfinn kraftmiklum spurningum og virkri hlustun sem hjálpar þér að rýna dýpra inn á við. Markþjálfun er samvinnuferli þar sem kjarni málsins er greindur. Við búum til rými og aðstæður þar sem þú finnur þín eigin svör og verkfæri sem virka fyrir þig.