Aron Ívar Benediktsson
Löggiltur osteópati

Aron útskrifaðist úr Skandinaviska Osteopathögskolan í Svíþjóð árið 2025 með bachelor í heilsuvísindum og diplóma í osteópatíu. Hann hefur starfað með fólki í þjálfun frá árinu 2019, þegar hann lauk námi sem ÍAK einkaþjálfari. Aron er einnig menntaður Mobility Specialist (FRC) og öndunarþjálfari samkvæmt Buteyko-aðferðinni.
Aron notar menntun og sérþekkingu sína til þess að hjálpa fólki að minnka og jafnvel losna við verki í líkamanum. Þegar hann vinnur með fólki þá blandar hann saman handvirkri meðhöndlun (hnykkingar, mjúkvefslosun, höfuðbein og spjaldhryggs meðferð, ofl.) við ráðgjöf og heimaæfingar sem styðja við markmið einstaklingsins.
Það sem drífur Aron áfram í starfi er brennandi áhugi hans á því að hjálpa fólki að losna úr verkjum og öðlast betri skilning á eigin líkama.
Hlutverk Arons í Heilsuvík er að bjóða upp á þjónustu fyrir alla aldurshópa sem kljást við stoðkerfisvandamál.
Sem dæmi má nefna:
-Bakverkir
-Hálsverkir
-Verkir eða eymsli í liðamótum (t.d. öxlum, mjöðmum, olnbogum og hnjám)
-Höfuðverkir, mígreni og svimi ef upptök eru frá stoðkerfi
-Vöðvaverkir
-Verkir sem leiða út í hendur eða fætur -Gigtarverkir og vefjagigt -Íþróttameiðsli
Ofl.