Gabríel Sindri Möller
Löggiltur osteópati

Gabríel útskrifaðist frá háskóla í Gautaborg og er löggiltur osteópati. Hann er uppalinn í Njarðvík, þar sem hann hefur lengi haft áhuga á heilsu og vellíðan. Það sem heillar Gabríel mest við starf sitt er að geta hjálpað fjölbreyttum hópi fólks með mismunandi stoðkerfisvandamál.
Gabríel opnaði stofu haustið 2023 og hefur síðan þá aflað sér góðrar reynslu í starfi, með áherslu á að byggja upp og dýpka þekkingu sína á mannslíkamanum. Frá ungum aldri hefur hann stundað íþróttir og haft mikinn áhuga á þeim. Í dag er hann hluti af teymi sem vinnur að því að halda leikmönnum körfubolta- og knattspyrnuliða Njarðvíkur heilum og í sínu besta formi.
Osteópatía er meðferðarform sem einblínir á að horfa á líkamann sem eina heild. Þessi heildræna og einstaklingsmiðaða hugsun gengur út á að skilja líkamann á djúpu stigi með það markmið að komast að rót vandamálsins. Eitt af því sem heillar Gabríel mest við Osteópatíuna er fjölbreytileiki aðferða sem notaðar eru við greiningu og meðhöndlun. Sú meðhöndlun sem valin er hverju sinni fer algjörlega eftir sjúkrasögu og stoðkerfisvanda sem leitað er aðstoðar með. Tekið er til greina líkamsstaða, vinnuaðstaða, líkamsbeiting, svefn, andlega hliðin og annað álag sem getur hrjáð einstaklinginn.
Algeng dæmi um stoðkerfisvanda eru:
- Stífleiki í hálsi og/eða herðum
- Bakverkir sem geta verið með eða án leiðandi verkja
- Meiðsli tengd íþróttum
- Verkir sem leiða út í hendur eða niður fætur
- Höfuðverkir - Stífleiki og/eða verkir í liðamótum sem eru t.d. mjaðmir, axlir, olnbogar og hné.
Fyrir hvern er Osteópatía?
Það er mjög fjölbreytt hverjir fara í svona meðhöndlun, það er t.d. fyrir iðnaðar-, skrifstofu- og íþróttafólk, óléttar konur og unga sem aldna.