top of page

Anna Pála Magnúsdóttir

Löggiltur sjúkraþjálfari

anna_edited.jpg

Anna Pála er löggiltur sjúkraþjálfari og útskrifaðist frá Fysioterapeutuddannelsen í Kaupmannahöfn árið 2007. Síðan þá hefur hún starfað við fagið í yfir 18 ár hjá Sjúkraþjálfun Suðurnesja, þar sem hún hefur öðlast víðtæka reynslu af meðferð fjölbreyttra vandamála.

Hún er núna á öðru ári í osteópata námi hjá ESO International, þar sem hún dýpkar enn frekar þekkingu sína á heildrænni nálgun og virkni mannslíkamans.

Anna Pála er Keflvíkingur með óbilandi áhuga á mannslíkamanum og hreyfingu. Í gegnum árin hefur hún starfað sem sjúkraþjálfari hjá fjölda knattspyrnu- og körfuboltaliða, bæði hjá körlum og konum, sem hefur gefið henni dýrmæta innsýn í íþróttameiðsli og endurhæfingu.

Það sem heillar hana mest í starfinu er fjölbreytnin og tækifærið til að nálgast hvern einstakling á heildrænan hátt, með það að markmiði að finna orsök vandans og að hjálpa fólki að ná betri líðan og virkni í daglegu lífi.

bottom of page